
Maður er nefndur
Þættir úr safni sjónvarps.
Í þessum þætti ræðir Eva Ásrún Albertsdóttir við Soffíu Guðmundsdóttur tónlistarkennara. Soffía segir frá ætt sinni og uppruna. Hún segir frá uppvaxtarárunum í Reykjavík. Soffía segir frá skólagöngu sinni en hún gekk í Landakotsskóla, Menntaskólann í Reykjavík og fór síðan í tónlistarnám í Kaupmannahöfn. Hún segir frá starfi sínu á sviði tónlistar og sem tónlistarkennari. Hún talar um þátttöku sína í stjórnmálastarfi fyrir Alþýðubandalagið en Soffía sat í bæjarstjórn Akureyrar í tólf ár og var varaþingmaður í átta ár. Dagskrárgerð: Sigurður S. Jónsson.

Þættir úr safni sjónvarps.