13:35
Kastljós
Mál Jóns Gunnarssonar, Íslenska æskulýðsrannsóknin og Sigurður Ingi Jóhannsson
Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Í Kastljósi kvöldsins er rætt við Jón Ólafsson prófessor við Háskóla Íslands um siðferðisleg álitamál tengd máli Jóns Gunnarssonar fyrrverandi ráðherra. Málið hefur verið mikið á milli tannanna á fólki í vikunni en það snýst um að alræmt njósnafyrirtæki hafi verið fengið til að afla gagna um afskipti Jóns Gunnarssonar af hvalveiðum og aflað þeirra með því að blekkja son Jóns, Gunnar Bergmann fasteignasala. Þá er rýnt í niðurstöður íslensku æskulýðsrannsóknarinnar sem voru kynntar í dag með Ragnýju Þóru Guðjohnsen, faglegum stjórnanda rannsóknarinnar. Niðurstöðurnar sýna vísbendingar um að andleg heilsa barna á Íslandi hafi batnað síðustu tvö ár en ýmsar áskoranir eru enn til staðar. Þá heldur Kastlkós áfram að varpa upp hinni hliðinni á formönnum flokkanna en að þessu sinni er komið að Sigurði Inga Jóhannssyni, formanni Framsóknarflokksins.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 23 mín.
e
Endursýnt.
Dagskrárliður er textaður.
,