Íslenskt sumar
Tónleikurinn mun halda sig á heimaslóðum og í næsta nágrenni, og spila íslenska og norræna sumartónlist enda sumarið í norðrinu engu líkt og tónlist norðursins nær gjarnan að endurspegla…
Í Tónleik að þessu sinni verður leikin tónlist eftir Alban Berg. Fyrst munu hljóma tveir kaflar úr Lýrískri svítu frá árunum 1925-26, en hún markar meðal annars upphaf tólftónatækninnar í verkum Bergs.Síðan verður fluttur fiðlukonsert Albans Bergs, en á undan honum heyrist kórall úr kantötu nr. 60 eftir J.S. Bach, sem Berg notaði sem efnivið í konsertinn.

Tónleikur er þáttur um tónlistarstefnur og tónlistarfræði, tónlistarmenn, tónskáld og tónlistarflytjendur.
Umsjón: Ingibjörg Eyþórsdóttir
Áður á dagskrá veturinn 2008-2009