Tónleikur

Leyft öllum aldurshópum

Goldberg-tilbrigðin

Í Tónleiknum í dag flytur kanadíski píanóleikarinn Glenn Gould Goldberg-tilbrigðin eftir Johann Sebastian Bach. Goldberg-tilbrigðin voru fyrsta verkið sem Glenn Gould hljóðritaði, þegar hann var kornungur maður árið 1955. Árið 1981 hljóðritaði hann þau svo aftur og þannig rammar verkið inn lífsstarf Glenns Gould. Í þættinum verður leikið örstutt brot úr viðtali sem tekið var við hann í kanadíska ríkisútvarpinu, CBC eftir útkomu seinni upptökunnar, þar sem hann ræðir meðal annars hraðaval. Gould lést skömmu eftir að viðtalið var tekið.

Í þættinum fá hlustendur að heyra upptökuna frá 1955 og lokakafla upptökunnar frá 1981.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Tónleikur

Tónleikur er þáttur um tónlistarstefnur og tónlistarfræði, tónlistarmenn, tónskáld og tónlistarflytjendur.

Umsjón: Ingibjörg Eyþórsdóttir

Áður á dagskrá veturinn 2008-2009

Þættir

,