Íslenskt sumar
Tónleikurinn mun halda sig á heimaslóðum og í næsta nágrenni, og spila íslenska og norræna sumartónlist enda sumarið í norðrinu engu líkt og tónlist norðursins nær gjarnan að endurspegla…
Eins og áheyrendur munu geta heyrt er tími í tónlist mjög afstætt hugtak. Strengjakvartett þessa þáttar er eini strengjakvartettinn sem Claude Debussy samdi, og hann er frá því fyrir aldamótin þarsíðustu saminn árið 1893, en er samt mun lengra kominn í uppbroti hefðanna en kvartettar Skandinavanna sem hafa hljómað í síðustu þáttum, þeirra Griegs, Nielsens og Sibeliusar. Auk þess verður leikinn einn þáttur úr La Mer, eða Hafinu og Rapsódía fyrir klarinett og hljómsveit, líka eftir Debussy.

Tónleikur er þáttur um tónlistarstefnur og tónlistarfræði, tónlistarmenn, tónskáld og tónlistarflytjendur.
Umsjón: Ingibjörg Eyþórsdóttir
Áður á dagskrá veturinn 2008-2009