Tónleikur

Leyft öllum aldurshópum

Þrír kvartettar

Önnur tónskáld tóku fljótlega að semja strengjakvartetta undir áhrifum frá fyrstu kvartettum Haydns, en þó er eins og Haydn beri lengi höfuð og herðar yfir önnur tónskáld á þessu sviði. Formið virðist hafa hentað honum sérlega vel; og tónsmíðar hans frá árunum 1769 til 72 hljóma eins og þær séu samdar mörgum árum á eftir kvartettum frá sama tímabili.

Í þættinum verða leiknir þrír kvartettar, sem allir eru samdir á þessum árum; fyrst strengjakvartett í C-dúr eftir Josef Myslivecek, síðan er kvartett eftir Mozart, sem ber númerið K 155 og er frá árinu 1772, og að síðustu kvartett eftir Joseph Haydn op. 9 nr. 4, frá árinu 1769.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Tónleikur

Tónleikur er þáttur um tónlistarstefnur og tónlistarfræði, tónlistarmenn, tónskáld og tónlistarflytjendur.

Umsjón: Ingibjörg Eyþórsdóttir

Áður á dagskrá veturinn 2008-2009

Þættir

,