Fleiri þjóðsögur um sólmyrkva
Kæru farþegar, verið velkomin um borð í Sólmyrkvastrætóinn. Þetta er enginn venjulegur strætó, hann getur ferðast um heima og geima, tíma og rúm. Munið að festa sætisbeltin og hafa…
Þjóðsögur þáttarins:
Nykurtjörn (Ísland)
Skála - Brandur (Ísland) - Athugið að atriði í þessum sögum gætu vakið óhug hjá yngstu börnunum, mælt er með að þau hlusti með fullorðnum.
Leikraddir:
Bríet Sif Ellenar Söndrudóttir
Ellen Björg Björnsdóttir
Gunnar Hansson
Hafsteinn Vilhelmsson
Jóhannes Ólafsson
Karl Pálsson
Ragnar Eyþórsson
Sigurður Ingi Einarsson
Handrit, lestur, klipping og hljóðskreyting: Ingibjörg Fríða Helgadóttir

Í þessum þáttum köfum við djúpt ofan í þjóðsögukistu heimsins. Sögurnar eru allskonar, sumar fyndnar, aðrar fróðlegar, sumar alveg út í hött og enn aðrar kannski svolítið hræðilegar eða draugalegar. Í hverjum þætti heyrum við tvær eða þrjár þjóðsögur frá ýmsum heimshornum.
Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir.