Fleiri þjóðsögur um sólmyrkva
Kæru farþegar, verið velkomin um borð í Sólmyrkvastrætóinn. Þetta er enginn venjulegur strætó, hann getur ferðast um heima og geima, tíma og rúm. Munið að festa sætisbeltin og hafa…
Þjóðsögur þáttarins:
Hjartalausi risinn (Noregur) - Athugið að atriði í þessari sögu gæti vakið óhug hjá yngstu börnunum, mælt er með að þau hlusti með fullorðnum.
Leikraddir:
Bjarni Gunnar Jensson
Hafsteinn Vilhelmsson
Hákon Kristjánsson
Karen Sæberg Guðmundsdóttir
Pétur Grétarsson
Ragnar Eyþórsson
Svanlaug Böðvarsdóttir
Handrit, lestur, klipping og hljóðskreyting: Ingibjörg Fríða Helgadóttir

Í þessum þáttum köfum við djúpt ofan í þjóðsögukistu heimsins. Sögurnar eru allskonar, sumar fyndnar, aðrar fróðlegar, sumar alveg út í hött og enn aðrar kannski svolítið hræðilegar eða draugalegar. Í hverjum þætti heyrum við tvær eða þrjár þjóðsögur frá ýmsum heimshornum.
Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir.