Ævintýri Ævars
Við spjöllum við Ævar Þór Benediktsson, leikara og rithöfund og kynnumst hans fjölbreyttu vinnu, spjöllum lífið og tilveruna, bækurnar, Ævar vísindamann, leikhúsið og nýtt sviðsverk…
Í þættinum í dag ætlum við að teygja úr okkur, kannski standa á fætur og jafnvel dilla okkur aðeins, því viðfangsefni þáttarins er: DANS!
Við kíkjum í heimsókn í tvo ólíka dansskóla, spjöllum við danskennara, dansnemendur, og danshöfund . Við skoðum ýmis konar dansmenningu, reimum á okkur dansskóna og rifjum upp skemmtilega dansa sem margir ættu að kannast við. Viðmælendur eru Ásrún Magnúsdóttir danshöfundur, Guðrún Óskarsdóttir skólastjóri Óskanda, dansnemendurnir Halldóra Ósk, María og Uni og Brynja Pétursdóttir, eigandi og skólastjóri Dans Brynju Péturs.
Umsjón: Sigrún Harðardóttir

Skemmtilegir þættir fyrir börn og fullorðna um barnamenningu af ýmsum toga. Umsjón: Sigrún Harðardóttir.