Sagnaslóð

Leyft öllum aldurshópum

Hleiðargarðsskotta

Í þættinum er fjallað um Hleiðargarðsskottu, sem sögð er hafa verið vakin upp um miðja 18. öld til að drepa Sigurð Björnsson, bónda í Hleiðargarði í Eyjafirði. Síðan hefur hún fylgt Hleiðargarðsfólkinu enda aldrei verið kveðin niður.

Lesið er um Hleiðargarðsskottu úr Þjóðsögum Jóns Árnasonar og fjórða bindi Grímu hinnar nýju, sem Þorsteinn M. Jónsson gaf út hjá Þjóðsögu í Reykjavík árið 1965.

Einnig er rætt við Arnald og Jón Snorrasyni á Akureyri, en þeir ólust upp við sögur af Hleiðargarðsskottu.

Lesari er Bryndís Þórhallsdóttir.

Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 12. mars 2010.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Sagnaslóð

Í Sagnaslóð er leitað fanga úr fortíðinni. Frásagnir úr sögu þjóðarinnar. Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson.

Þættir

,