Sagnaslóð

Leyft öllum aldurshópum

Ingivaldur Nikulásson verkamaður og fræðimaður

Í þættinum er fjallað um Ingivald Nikulásson (1877–1951), verkamann og fræðimann, sem fæddist á Bíldudal og bjó þar lengst af starfsævi sinnar. Ævistarf Ingivalds tengdist að mestu sjómennsku og annarri verkamannavinnu, en hann var afar fróðleiksfús og aflaði sér mikillar menntunar á eigin spýtur.

Hann lagði stund á siglingafræði, stjörnufræði og stærðfræði og kunni skil á Norðurlandamálum auk ensku og þýsku. Ingivaldur safnaði þjóðsögum, fékkst við ættfræði, skrifaði leikrit og leikstýrði, auk þess sem hann þýddi verk Shakespeares úr frummálinu.

Í þættinum eru lesnir tveir þættir sem Ingivaldur skráði.

Lesari er Bryndís Þórhallsdóttir.

Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 12. febrúar 2010.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Sagnaslóð

Í Sagnaslóð er leitað fanga úr fortíðinni. Frásagnir úr sögu þjóðarinnar. Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson.

Þættir

,