Sagnaslóð

Leyft öllum aldurshópum

Sigurður Þorsteinsson sjómaður

Í þættinum er fjallað um Sigurð Þorsteinsson (1929–2008), sem var sjómaður alla sína ævi. Lesið er úr bókinni Alltaf til í slaginn, frásögn af ævi Sigurðar sem Friðrik Erlingsson skráði. Bókin kom út hjá Vöku-Helgafelli árið 1992.

Í þættinum segir frá fyrstu árum Sigurðar til sjós, námsárum hans og strandsiglingum á Heklunni á árunum 1953–1958. Einnig segir frá störfum hans í Danmörku og Frakklandi á vegum Óskars Halldórssonar og frá Hæringi, risaskipi sem sótt var til vesturstrandar Ameríku og var um skamma hríð í eigu Íslendinga.

Lesari er Bryndís Þórhallsdóttir.

Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 6. nóvember 2009.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Sagnaslóð

Í Sagnaslóð er leitað fanga úr fortíðinni. Frásagnir úr sögu þjóðarinnar. Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson.

Þættir

,