Eskifjarðarheiði
Í þættinum er fjallað um Eskifjarðarheiði og sögulega atburði sem tengjast heiðinni.
Í þættinum er lesið úr bók Elínar Pálmadóttur, Með fortíðina í farteskinu, sem kom út hjá Vöku-Helgafelli árið 1996. Í bókinni er sögð saga þriggja formæðra Elínar: ömmu hennar, langömmu og langalangömmu. Í þættinum er sérstaklega fjallað um sögu langömmunnar, Sigurveigar Ingimundardóttur.
Lesari ásamt umsjónarmanni er Bryndís Þórhallsdóttir.
Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 8. september 2009.

Í Sagnaslóð er leitað fanga úr fortíðinni. Frásagnir úr sögu þjóðarinnar. Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson.