Sagnaslóð

Leyft öllum aldurshópum

Sagnir Jakobs gamla

Í bókinni Sagnir Jakobs gamla eru sagnir sem Þorsteinn Erlingsson (1858–1914) skráði eftir Jakobi Aþanasíussyni (1826–1915), sem var kunnur sagnamaður á sinni tíð. Guðmundur Gíslason Hagalín bjó sögurnar til prentunar og bókin kom út í Reykjavík árið 1933.

Í þættinum eru sagðar sögur af Gísla Gunnarssyni, kunnum formanni við Breiðafjörð, og Magnúsi, sem bar viðurnefnið Sálarháski og var ekki síður kunnur, þótt fyrir annað væri. Einnig segir frá Erlendi, vinnumanni hjá Bjarna Thorarensen. Erlendur var mikill kaffisvelgur og hafði það örlagaríkar afleiðingar í för með sér.

Lesari er Sigríður Kristín Jónsdóttir.

Umsjón: Jón Ormar Ormsson.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 30. október 2009.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Sagnaslóð

Í Sagnaslóð er leitað fanga úr fortíðinni. Frásagnir úr sögu þjóðarinnar. Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson.

Þættir

,