Brim og boðar
Í þættinum er efni úr bókinni Brim og Boðar. Lesin er frásögn um það þegar vöru-og farþegaskipið Tryggvi Kóngur fórst austur af Langanesi árið 1907. Lesari með umsjónarmanni Bryndís…
Fjallað um Slysavarnarfélagið Landsbjörg og rætt v ið tvö leiðangursmenn úr Björgunarsveit Árskógsstrandar sem fóru í björgunarleiðangur til að bjarga hestum úr sjálfheldu í Hvammsfjalli 4. janúar 1983. Björgunarsveitarmennirnir eru Brynjólfur Sveinsson landfræðingur og kennari og Elvar Reykjalín framkvæmdastjóri. Lesið úr flugeldablaði Súlna á Akureyri en blaðið kom út milli jóla og nýárs 2008. Lesin sagan,, Sauðfé bjargað úr sjálfheldu“, eftir Anton Berg.
Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson.

Í Sagnaslóð er víða leitað fanga. Sagt er frá mönnum og málefnum fyrri tíma. Umsjónarmenn: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson
Þættir frá vetrinum 2008-2009