Brim og boðar
Í þættinum er efni úr bókinni Brim og Boðar. Lesin er frásögn um það þegar vöru-og farþegaskipið Tryggvi Kóngur fórst austur af Langanesi árið 1907. Lesari með umsjónarmanni Bryndís…
Í Sagnaslóð er sagt frá Helga Eyjólfssyni byggingameistara sem fæddist 1906 og lést 1995. Meðal þess sem Helgi afrekaði um ævina var að reisa þrjár síldarverksmiðjur, í Ingólfsfirði, Djúpuvík og á Hjalteyri (1937)en sú verksmiðja var reist á undraskömmum tíma og var stærsta verksmiðja sinnar tegundar í Evrópu þá.
Lesið er úr bókinni Íslenskir athafnamenn eftir Þorstein Matthíasson þar sem Helgi segir frá. Í tilefni dagsins er tónlistin eftir Tólfta september. Lesari: Bryndís Þórhallsdóttir. Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson

Í Sagnaslóð er víða leitað fanga. Sagt er frá mönnum og málefnum fyrri tíma. Umsjónarmenn: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson
Þættir frá vetrinum 2008-2009