Brim og boðar
Í þættinum er efni úr bókinni Brim og Boðar. Lesin er frásögn um það þegar vöru-og farþegaskipið Tryggvi Kóngur fórst austur af Langanesi árið 1907. Lesari með umsjónarmanni Bryndís…
Í Sagnaslóð Birgis Sveinbjörnssonar er rætt við Ellert Kárason fyrrverandi leigubílsjóra á Akureyri um starfið en Ellert var leigubílsjóri í 52 ár og þrjá mánuði og keyrði á þeim tíma um 2,7 miljón kílómetra eða eins og 67 sinnum kringum miðbaug. Þá er lesin frásögn af fyrstu póstferðinni sem farin var alla leið frá Reykjavík til Akureyrar á bíl en það var Guðmundur Albertsson sem fór þá ferð 1933.

Í Sagnaslóð er víða leitað fanga. Sagt er frá mönnum og málefnum fyrri tíma. Umsjónarmenn: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson
Þættir frá vetrinum 2008-2009