Gullöld revíunnar (2008-2009)

14. þáttur. Gullöld revíunnar

Hér verður fjallað um revíur frá árunum 1957 til 1960: „Gullöldin okkar", „Tunglið, tunglið, taktu mig", „Rokk og rómantík", „Frjálsir fiskar" og „Eitt lauf". Árni Ísleifsson samdi lög fyrir sumar þessar revíur, einnig samdi Pálmar Ólason lag fyrir „Rokk og rómantík" og Eyþór Þorláksson lag fyrir „Eitt lauf". Fluttar verða nýjar hljóðritanir af lögum þeirra Pálmars og Eyþórs, og spjallað við Pálmar, einnig við Hjálmar Gíslason og Sigríði Hannesdóttur sem léku í Gullöldinni okkar, og Ómar Ragnarsson sem tók þátt í revíunni „Eitt lauf". Það var síðasta revían sem Haraldur Á. Sigurðsson lék í, en hér er litið svo á gullöld revíunnar endi um leið og leikferill hans.

Frumflutt

11. jan. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Gullöld revíunnar (2008-2009)

Gullöld revíunnar (2008-2009)

Í þessari þáttaröð er fjallað um íslenskar revíur og revíusöngva allt frá 19. öld til 1960, en innan þessa tímabils urðu hér til vinsælar revíur svo sem „Fornar dyggðir", „Hver maður sinn skammt", „Nú er það svart, maður" og „Allt í lagi, lagsi", og margir söngvarnir úr þeim eru alþekktir: „Er Stebbi litli fæddist", „Það er flott, okkar lögreglulið", „Það er draumur vera með dáta" og „Kalli á Hóli". Mikil áhersla verður lögð á tónlistina, en þó margir revíusöngvar væru samdir við erlend lög sömdu íslensk tónskáld einnig revíulög. Til eru revíulög eftir Árna Thorsteinson, Þórarin Guðmundsson, Emil Thoroddsen, Oddgeir Kristjánsson, Bjarna Böðvarsson og Árna Björnsson, svo einhverjir séu nefndir, og hafa verið gerðar nýjar hljóðritanir af sumum þessara laga fyrir þáttaröðina, flestar með Erni Árnasyni og Soffíu Karlsdóttur, en Jónas Þórir leikur á píanó. Einnig verða fluttar gamlar hljóðritanir með revíustjörnum gulláranna, svo sem Alfreð Andréssyni, Haraldi Á. Sigurðssyni, Brynjólfi Jóhannessyni, Lárusi Ingólfssyni, Nínu Sveinsdóttur og Soffíu Karlsdóttur. Lesarar í þáttaröðinni eru Kjartan Guðjónsson, Helga Braga Jónsdóttir og Viðar Eggertsson, en umsjónarmaður Una Margrét Jónsdóttir.

Þættir

,