Gullöld revíunnar (2008-2009)

6. þáttur. Í draumi með dáta

Áfram líða stríðsárin og hafa m.a. í för með sér skömmtun á ýmsum nauðsynjavörum. Í þessum þætti verður fjallað um revíuna „Hver maður sinn skammt" frá 1941, en í henni eru m.a. lögin „Snaps skaltu fá", „Það er draumur vera með dáta", „Síldarstúlkan" (lag Árna Björnssonar) og Kalli á Hóli". Sum lögin úr revíunni hafa varðveist í hljóðritun með upprunalegum flytjendum, svo sem Söngur Saumalínu með Lárusi Ingólfssyni. Einnig verður lítillega fjallað um Keflavíkurrevíuna „Draumalandið" eftir Helga S. Jónsson, og sagt frá andláti hins vinsæla gamanvísnasöngvara Bjarna Björnssonar 1942.

Frumflutt

11. jan. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Gullöld revíunnar (2008-2009)

Gullöld revíunnar (2008-2009)

Í þessari þáttaröð er fjallað um íslenskar revíur og revíusöngva allt frá 19. öld til 1960, en innan þessa tímabils urðu hér til vinsælar revíur svo sem „Fornar dyggðir", „Hver maður sinn skammt", „Nú er það svart, maður" og „Allt í lagi, lagsi", og margir söngvarnir úr þeim eru alþekktir: „Er Stebbi litli fæddist", „Það er flott, okkar lögreglulið", „Það er draumur vera með dáta" og „Kalli á Hóli". Mikil áhersla verður lögð á tónlistina, en þó margir revíusöngvar væru samdir við erlend lög sömdu íslensk tónskáld einnig revíulög. Til eru revíulög eftir Árna Thorsteinson, Þórarin Guðmundsson, Emil Thoroddsen, Oddgeir Kristjánsson, Bjarna Böðvarsson og Árna Björnsson, svo einhverjir séu nefndir, og hafa verið gerðar nýjar hljóðritanir af sumum þessara laga fyrir þáttaröðina, flestar með Erni Árnasyni og Soffíu Karlsdóttur, en Jónas Þórir leikur á píanó. Einnig verða fluttar gamlar hljóðritanir með revíustjörnum gulláranna, svo sem Alfreð Andréssyni, Haraldi Á. Sigurðssyni, Brynjólfi Jóhannessyni, Lárusi Ingólfssyni, Nínu Sveinsdóttur og Soffíu Karlsdóttur. Lesarar í þáttaröðinni eru Kjartan Guðjónsson, Helga Braga Jónsdóttir og Viðar Eggertsson, en umsjónarmaður Una Margrét Jónsdóttir.

Þættir

,