Gullöld revíunnar (2008-2009)

3. þáttur. Margt á títuprjónunum

Hér verður einkum fjallað um revíur frá því um miðjan 3. áratuginn og fram undir 1938. Í Reykjavík voru á þessum tíma frumsýndar revíurnar Tíminn og Eilífðin, Eldvígslan, Lausar skrúfur og Títuprjónar, en á Seyðisfirði Glettingur 1926. Upp úr 1930 komu svo fram á sjónarsviðið tvær upprennandi revíustjörnur: Brynjólfur Jóhannesson og Alfreð Andrésson. Einnig verður fjallað um KR-revíurnar sem Erlendur Pétursson stóð fyrir í kringum 1930 og spjallað við gamlan KR-ing, Baldur Jónsson, sem man eftir þeim. Flutt verður hljóðritun af laginu „Næturlögreglan" sem Oddgeir Kristjánsson samdi 1936 við texta eftir Árna í Eyjum og ekki hefur verið hljóðritað áður.

Frumflutt

11. jan. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Gullöld revíunnar (2008-2009)

Gullöld revíunnar (2008-2009)

Í þessari þáttaröð er fjallað um íslenskar revíur og revíusöngva allt frá 19. öld til 1960, en innan þessa tímabils urðu hér til vinsælar revíur svo sem „Fornar dyggðir", „Hver maður sinn skammt", „Nú er það svart, maður" og „Allt í lagi, lagsi", og margir söngvarnir úr þeim eru alþekktir: „Er Stebbi litli fæddist", „Það er flott, okkar lögreglulið", „Það er draumur vera með dáta" og „Kalli á Hóli". Mikil áhersla verður lögð á tónlistina, en þó margir revíusöngvar væru samdir við erlend lög sömdu íslensk tónskáld einnig revíulög. Til eru revíulög eftir Árna Thorsteinson, Þórarin Guðmundsson, Emil Thoroddsen, Oddgeir Kristjánsson, Bjarna Böðvarsson og Árna Björnsson, svo einhverjir séu nefndir, og hafa verið gerðar nýjar hljóðritanir af sumum þessara laga fyrir þáttaröðina, flestar með Erni Árnasyni og Soffíu Karlsdóttur, en Jónas Þórir leikur á píanó. Einnig verða fluttar gamlar hljóðritanir með revíustjörnum gulláranna, svo sem Alfreð Andréssyni, Haraldi Á. Sigurðssyni, Brynjólfi Jóhannessyni, Lárusi Ingólfssyni, Nínu Sveinsdóttur og Soffíu Karlsdóttur. Lesarar í þáttaröðinni eru Kjartan Guðjónsson, Helga Braga Jónsdóttir og Viðar Eggertsson, en umsjónarmaður Una Margrét Jónsdóttir.

Þættir

,