Gullöld revíunnar (2008-2009)

11. þáttur. Taktu því rólega á gullnu leiðinni

Á síðustu árum 5. áratugarins var mikil vöruþurrð á Íslandi, nauðsynjavörur voru stranglega skammtaðar og húsmæður fóru á fætur á næturlagi til bíða í biðröðum fyrir utan verslanir. Mikið var hent gaman þessu í revíunum, og í þættinum verður fjallað um Akureyrarrevíuna „Taktu það rólega" frá 1948 og „Gullnu leiðina" eftir Loft Guðmundsson sem sýnd var í Hafnarfirði 1949, en í báðum þessum revíum kemur fram persóna sem heitir Hamstrína, og hugsar ekki um annað en hamstra sem mest af vörum. Rætt verður við Richard Þórólfsson og Gísla Eyland, sem tóku þátt í „Taktu það rólega" og Engilráð Óskarsdóttur sem lék í „Gullnu leiðinni".

Frumflutt

11. jan. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Gullöld revíunnar (2008-2009)

Gullöld revíunnar (2008-2009)

Í þessari þáttaröð er fjallað um íslenskar revíur og revíusöngva allt frá 19. öld til 1960, en innan þessa tímabils urðu hér til vinsælar revíur svo sem „Fornar dyggðir", „Hver maður sinn skammt", „Nú er það svart, maður" og „Allt í lagi, lagsi", og margir söngvarnir úr þeim eru alþekktir: „Er Stebbi litli fæddist", „Það er flott, okkar lögreglulið", „Það er draumur vera með dáta" og „Kalli á Hóli". Mikil áhersla verður lögð á tónlistina, en þó margir revíusöngvar væru samdir við erlend lög sömdu íslensk tónskáld einnig revíulög. Til eru revíulög eftir Árna Thorsteinson, Þórarin Guðmundsson, Emil Thoroddsen, Oddgeir Kristjánsson, Bjarna Böðvarsson og Árna Björnsson, svo einhverjir séu nefndir, og hafa verið gerðar nýjar hljóðritanir af sumum þessara laga fyrir þáttaröðina, flestar með Erni Árnasyni og Soffíu Karlsdóttur, en Jónas Þórir leikur á píanó. Einnig verða fluttar gamlar hljóðritanir með revíustjörnum gulláranna, svo sem Alfreð Andréssyni, Haraldi Á. Sigurðssyni, Brynjólfi Jóhannessyni, Lárusi Ingólfssyni, Nínu Sveinsdóttur og Soffíu Karlsdóttur. Lesarar í þáttaröðinni eru Kjartan Guðjónsson, Helga Braga Jónsdóttir og Viðar Eggertsson, en umsjónarmaður Una Margrét Jónsdóttir.

Þættir

,