Gullöld revíunnar (2008-2009)

7. þáttur. Nú er það svart

Í þessum þætti verður fjallað úr revíurnar er það svart, maður og Halló, Ameríka sem báðar voru frumsýndar 1942, en í þeim finna lög eins og Maðurinn hennar Jónínu hans Jóns, „Áður var Reykjavík annar bær" og Gunna var í sinni sveit. Sumar hljóðritanir verða fluttar með upprunalegum flytjendum: Lárusi Ingólfssyni og Hermanni Guðmundssyni.

Frumflutt

11. jan. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Gullöld revíunnar (2008-2009)

Gullöld revíunnar (2008-2009)

Í þessari þáttaröð er fjallað um íslenskar revíur og revíusöngva allt frá 19. öld til 1960, en innan þessa tímabils urðu hér til vinsælar revíur svo sem „Fornar dyggðir", „Hver maður sinn skammt", „Nú er það svart, maður" og „Allt í lagi, lagsi", og margir söngvarnir úr þeim eru alþekktir: „Er Stebbi litli fæddist", „Það er flott, okkar lögreglulið", „Það er draumur vera með dáta" og „Kalli á Hóli". Mikil áhersla verður lögð á tónlistina, en þó margir revíusöngvar væru samdir við erlend lög sömdu íslensk tónskáld einnig revíulög. Til eru revíulög eftir Árna Thorsteinson, Þórarin Guðmundsson, Emil Thoroddsen, Oddgeir Kristjánsson, Bjarna Böðvarsson og Árna Björnsson, svo einhverjir séu nefndir, og hafa verið gerðar nýjar hljóðritanir af sumum þessara laga fyrir þáttaröðina, flestar með Erni Árnasyni og Soffíu Karlsdóttur, en Jónas Þórir leikur á píanó. Einnig verða fluttar gamlar hljóðritanir með revíustjörnum gulláranna, svo sem Alfreð Andréssyni, Haraldi Á. Sigurðssyni, Brynjólfi Jóhannessyni, Lárusi Ingólfssyni, Nínu Sveinsdóttur og Soffíu Karlsdóttur. Lesarar í þáttaröðinni eru Kjartan Guðjónsson, Helga Braga Jónsdóttir og Viðar Eggertsson, en umsjónarmaður Una Margrét Jónsdóttir.

Þættir

,