Þáttur 12 af 12
Rætt við Þráin Lárusson um "hið vanmetna grænmeti" rófuna og hvað sé hægt að matbúa úr henni.
Jórunn Sigurðardóttir les úr Grasaferð Jónasar Hallgrímssonar. Fjallað um sögu hvannarinnar, hvernig hún var nýtt í matargerð og hvernig má nýta hana. Jóhann Hauksson les brot úr grein Ingólfs Davíðssonar úr Náttúrufræðingnum frá 1971. Umsjónarmaður fer yfir nokkrar uppskriftir þar sem hvönnin er í aðalhlutverki. Rætt við Helgu Pálínu Brynjólfsdóttur, textílkonu og deildarfulltrúa við LHÍ, um jurtir í matargerð og leggur hún aðaláherslu á birki.
Umsjón: Ingveldur G. Ólafsdóttir.

Ingveldur G. Ólafsdóttir fjallar um villtar íslenskar jurtir og hvernig hægt er að nýta þær í mat og drykk og margvíslegan annan máta. Hún ræðir við kunnáttufólk og leitar víða fanga.
(Frá 2004)