Daníel Ágús Haraldsson, tónlistarmaður
Daníel Ágúst Haraldsson (f. 1969) er ein af merkustu röddum Íslands þegar kemur að söng í popp- og rokktónlist á undanförnum áratugum en með sveitum sínum, Ný dönsk og Gus Gus, hefur…
Allt frá árinu 1976 hefur hollenski myndlistarmaðurinn Kees Visser (f. 1948) verið hluti af íslensku myndlistarlífi, en þá hélt hann sína fyrstu einkasýningu í Gallerí SÚM. Aðferðir Kees eru nánast vísindalegar oft á tíðum, en helstu byggingarefni hans eru samt einfaldlega mikilvægustu atriði myndlistar; litir og form.
Tónlistin í þættinum: Keith Jarrett leikur á píanó Helgan sálm eftir Gurdijeff.
Umsjón: Guðni Tómasson.

Börn tímans eru listamenn sem náð hafa viðurkenningu og góðum árangri í listsköpun sinni. Í hverjum þætti er rætt við listamann á heimavelli og spurt hvað drífur þig áfram, hver eru viðfangsefnin og áskoranirnar og hvað gerir leitina að inntaki listarinnar þess virði að haldið er í hana.
Umsjón: Guðni Tómasson.