Í fornöld komu læknar fram með þá hugmynd að fjórar lyndiseinkunnir stjórnuðu persónugerð allra manna: léttlyndi, þunglyndi, rólyndi og ákaflyndi. Lengi eimdi eftir af þessum kenningum og á árunum 1901-2 samdi danska tónskáldið Carl Nielsen sinfóníu sem hann kallaði "Lyndiseinkunnirnar fjórar" (De fire Temperamenter). Sinfónían var í fjórum þáttum og átti hver þeirra að lýsa einni lyndiseinkunn. Í þættinum "Á tónsviðinu" verða leiknir tveir þættir úr sinfóníunni og einnig verður fluttur söngvaflokkur sem Carl Maria von Weber samdi árið 1816, en þar er því lýst hvernig fjórir menn, hver með sína lyndiseinkunn, bregðast misjafnlega við vonbrigðum í ástamálum. Gamanópera Mozarts, "Leikhússtjórinn" kemur einnig við sögu, en þar keppa tvær ólíkar söngkonur um sama hlutverkið.
Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Jóhannes Ólafsson.