Í þættinum verða fluttar tónsmíðar sem tengjast bláa litnum, en þar má nefna „Rhapsody in Blue“ eftir George Gershwin, valsinn „Dóná svo blá“ eftir Johann Strauss og „L'aspiration vers l'azur“ (Þrá eftir bláma) eftir Zigmund Stojowski. Einnig verða flutt sönglög eftir Robert Franz, Johannes Brahms, Skúla Halldórsson og fleiri höfunda. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Gunnar Hansson.