Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.
B
Glæpamenn hafa tileinkað sér tæknina og fremja glæpi í síauknum mæli gegnum internetið. Netið gefur þeim færi á að fremja glæpi yfir landamæri. Slíkt hefur verið höfuðverkur laganna varða; hvað getur lögreglan á Íslandi gert ef þrjóti langt, langt í burtu tekst að hafa af mér fé. Fyrir liggja drög að alþjóðasamningi sem unnin hafa verið á vettvangi Sameinuðu þjóðanna sem ætlað er að bæta samstarf ríkja gegn netglæpum. María Rún Bjarnadóttir, lögfræðingur hjá Ríkislögreglustjóra, sagði frá þessu.
Menningarmálastofnun SÞ, UNESCO, staðfesti fyrr í sumar Heimilisiðnaðarfélagið sem viðurkennd félagasamtök. Það þýðir að Heimilisiðnaðarfélagið telst mikilvægt við að varðveita, viðhalda og miðla óáþreifanlegum menningararfi. Kristín Vala Breiðfjörð er formaður Heimilisiðnaðarfélagsins og hún sagði okkur frá því hvernig þetta kom til og hvað þetta þýðir.
Við fjölluðum líka um það heldur leiðinlega fyrirbæri lofthræðslu. Margir kannast við hana, lofthræðsla getur verið gagnleg þegar við erum hátt uppi og þurfum virkilega að passa okkur á að detta ekki – en stundum, og kannski oft, er hún með öllu tilefnislaus tilfinning. Gunnlaugur Pétursson sálfræðingur ræddi þessi mál við okkur árið 2023 og viðtal við hann var endurleikið.
Tónlist:
Anne Grete Preus - Fryd.
Marius Ziska - While you were dreaming.
Veðurstofa Íslands.
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Við fengum Dr. Unni Óttarsdóttur listmeðferðarfræðing í þáttinn til að segja okkur frá nýlegri rannsókn sinni sem sýnir að einstaklingar með gott minni muna enn betur til langs tíma með því að teikna. Rannsóknin sýnir einnig að einstaklingar sem eiga erfitt með að muna skrifuð orð eiga betra með að muna orðin með því að teikna þau. Eftir því sem best er vitað er þetta í fyrsta sinn sem rannsókn sem þessi er framkvæmd í heiminum og markar tímamót samkvæmt tímaritinu Education Sciences. Unnur sagði okkur frá rannsókninni og frá niðurstöðum hennar, sem eru mjög athyglisverðar.
Danskir dagar í Stykkishólmi hefjast á morgun í Stykkishólmi. Hátíðin er 30 ára í ár og við heyrðum í Hjördísi Pálsdóttur, framkvæmdastjóra danskra daga og safnstjóra Byggðasafns Snæfellinga, hún sagði okkur frá hátíðinni þar sem til dæmis annar dönsku Olsen bræðranna kemur og spilar.
Svo fengum við póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni. Í korti dagsins sagði Magnús frá Þjóðhátíðinni sem fram fór um þar síðustu helgi og þótti takast vel þrátt fyrir ósamvinnuþýða veðurguði. Hann segist hafa fylgst með brekkusöngvurunum sem notuðu snjallsímana sína til að syngja með skemmtikröftunum og í framhaldinu rifjaði hann upp kynni sín af símanum frá síldarárunum þegar hann var sendill hjá Pósti og Síma.
Svo var fugl dagsins auðvitað á sínum stað.
Tónlist í þættinum:
Hamingjan / Ðe lónlí blú bojs (Bob Merill, texti Þorsteinn Eggertsson)
Stórir skór / Stuðmenn (Egill Ólafsson, Jakob Frímann Magnússon og Valgeir Guðjónsson)
Einbúinn / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Magnús Eiríksson)
Smuk som et stjerneskud / Brödrene Olsen (Jörgen Olsen)
Kartöflur / Sigurður Halldór Guðmundsson (Sigurður Halldór Guðmundsson)
UMSJÓN GUNNAR HANSSON
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps skoðar að kæra útgáfu virkjunarleyfis fyrir vindorkuver við Búrfell. Oddvitinn segir ábata nærsamfélagsins af virkjuninni engan.
Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í Bel-gorod héraði í Rússlandi vegna árása Úkraínumanna í þar. Innrásarherinn hefur lagt undir sig mikið land í nágrannahéraðinu Kursk.
Barna- og menntamálaráðherra segir það sérstaka nálgun hjá bæjarstjóranum í Hafnarfirði að tala um að sveitarfélögum hafi verið stillt upp við vegg með gjaldfrjálsum máltíðum í grunnskólum.
Starfsumhverfi lækna á Íslandi hefur lengi verið mjög erfitt og úrbætur gerast hægt, að sögn formanns Læknafélags Íslands. Grípa verði fast í handbremsuna áður en það er of seint.
Móðir 14 ára drengs sem skilinn var eftir á flugvellinum í Róm vegna þess að yfirbókað var í flug Wizz air til Keflavíkur segir fátt um svör frá flugfélaginu.
Alsírska hnefaleikakonan og ólympíumeistarinn Imane Khelif, sem varð fyrir miklu aðkasti á Ólympíuleikunum hefur höfðað mál vegna neteineltis, meðal annars gegn rithöfundinum J.K. Rowling og auðkýfingnum Elon Musk.
Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.
Harkaleg mótmæli brutust út í Venesúela eftir forsetakosningarnar þar í lok júlí. Sitjandi forseti, Nicolás Maduro, lýsti yfir sigri en stjórnarandstaðan segir mótframbjóðandann, Edmundo Gonzalez, réttmætan sigurvegara. Ingi Freyr Vilhjálmsson er nýr umsjónarmaður Þetta helst og þekkir landið vel. Hann skýrir frá ástandinu eftir kosningar og ræðir við Venesúelabúa á Íslandi.
Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlist frá útsendingarlogg 2024-08-14
Magnús Jóhann Ragnarsson Tónlistarm. - A?n tillits.
Peterson, Oscar, Gillespie, Dizzy - Con Alma.
Wright, Lizz - All the Way Here.
KK, Sálgæslan Hljómsveit - Batnandi mönnum er best að lifa.
Cole, Nat King - Body and soul.
Christy, June - Midnight sun.
Thor Wolf - Hotel Akureyri.
Urtreger, René, Clarke, Kenny, Michelot, Pierre, Wilen, Barney, Davis, Miles - Generique.
New Air - Salute to the enema bandit.
Kristjana Stefánsdóttir - When sunny gets blue.
Ross, Joel - Is it love that inspires you?.
Fólk og menning í strandbyggðum á Íslandi.
Umsjón: Pétur Halldórsson.
Rætt er við Jakob Jakobsson, fiskifræðing og fyrrverandi forstjóra Hafrannsóknarstofnunar, sem segir frá því þegar hann fór á fund Árna Friðrikssonar fiskifélagsstjóra til að fá ráðleggingar um nám í fiskifræði. Árni vildi ekki að Jakob færi til Noregs eins og hann hafði ætlað sér því að hann vildi að fiskifræðingar sæktu sér menntun víðar. Því fór Jakob til Bretlands en upphaf síldarrannsókna hans var strax sumarið 1952, í upphafi námsferlis Jakobs í fiskifræðinni. Þá tók hann að sér síldarmerkingar á bát föður síns, Auðbjörgu NK. Síðan er nafn Jakobs nátengt síld og síldarrannsóknum og fáir þekkja betur en hann íslenska síldarsögu á síðari hluta tuttugustu aldar. Jakob segir frá síldarmerkingum, hvaða þýðingu þær höfðu til að sýna fram á að tilvist norsk-íslenska síldarstofnsins og göngur síldarinnar kringum landið, hvernig menn björguðu þessum verðmæta stofni frá útrýmingu og fleira. Minnst er á samstöðu íslenskra síldarskipstjóra og hvernig þeir leiðbeindu hver öðrum við veiðarnar, til dæmis þegar sumir voru komnir með asdikkið svokallaða, fiskileitartæki sem sýndi hvar torfurnar voru í sjónum.
Í Tengivagninum er fjallað um það helsta sem er að gerast í menningu í sumar.
Fjallið innra nefnist sýning á verkum Stefáns Jónssonar frá Möðrudal, Stórval, sem opnuð verður í i8 galleríi 15. Ágúst. Í þætti dagsins kemur Kristján Guðjónsson við í galleríinu og ræðir við Börk Arnarsson framkvæmdarstjóra og eiganda.
Kolbeinn Rastrick, kvikmynda- og sjónvarpsrýnir, hugar að þessu sinni að kvikmyndunum The Adventures of Robin Hood eða Ævintýri Hróa Hattar frá árinu 1938 og The Spiral Staircase eða Hringstiginn frá árinu 1946.
Einnig heyrum við áður óútgefið verk eftir Ryuichi Sakamoto sem tileinkað er Jóhanni Jóhannssyni tónskáldi og kom út nú í sumar á einleiksplötu sem nefnist Opus.
Í síðari hluta þáttar setjast Bjarni Daníel og Kristján niður með Dóru Júlíu Agnarsdóttur, fjölmiðlakonu, plötusnúði og barre þjálfara, og leggja fyrir hana spurningar í anda spurningalista franska rithöfundarins Marcel Proust.
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Þættir fyrir börn og fjölskyldur þar sem Margrét Kristín Blöndal útskýrir fyrirbæri úr heimi tónlistarinnar þannig að allir skilja.
Veðurstofa Íslands.
Dánarfregnir.
Frá sumartónlistarhátíðum vítt og breitt um Evrópu.
Hljóðritun frá einleikstónleikum píanóleikarans Severin von Eckardstein sem fram fóru í Konzerthaus tónleikahúsinu í Berlín, 1. júní sl. á Píanóhátíðinni í Berlín.
Á efnisskrá eru verk eftir Fréderic Chopin, Anton Bruckner, Ludwig van Beethoven og Nikolaíj Medtner.
Umsjón: Ása Briem.
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Við fengum Dr. Unni Óttarsdóttur listmeðferðarfræðing í þáttinn til að segja okkur frá nýlegri rannsókn sinni sem sýnir að einstaklingar með gott minni muna enn betur til langs tíma með því að teikna. Rannsóknin sýnir einnig að einstaklingar sem eiga erfitt með að muna skrifuð orð eiga betra með að muna orðin með því að teikna þau. Eftir því sem best er vitað er þetta í fyrsta sinn sem rannsókn sem þessi er framkvæmd í heiminum og markar tímamót samkvæmt tímaritinu Education Sciences. Unnur sagði okkur frá rannsókninni og frá niðurstöðum hennar, sem eru mjög athyglisverðar.
Danskir dagar í Stykkishólmi hefjast á morgun í Stykkishólmi. Hátíðin er 30 ára í ár og við heyrðum í Hjördísi Pálsdóttur, framkvæmdastjóra danskra daga og safnstjóra Byggðasafns Snæfellinga, hún sagði okkur frá hátíðinni þar sem til dæmis annar dönsku Olsen bræðranna kemur og spilar.
Svo fengum við póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni. Í korti dagsins sagði Magnús frá Þjóðhátíðinni sem fram fór um þar síðustu helgi og þótti takast vel þrátt fyrir ósamvinnuþýða veðurguði. Hann segist hafa fylgst með brekkusöngvurunum sem notuðu snjallsímana sína til að syngja með skemmtikröftunum og í framhaldinu rifjaði hann upp kynni sín af símanum frá síldarárunum þegar hann var sendill hjá Pósti og Síma.
Svo var fugl dagsins auðvitað á sínum stað.
Tónlist í þættinum:
Hamingjan / Ðe lónlí blú bojs (Bob Merill, texti Þorsteinn Eggertsson)
Stórir skór / Stuðmenn (Egill Ólafsson, Jakob Frímann Magnússon og Valgeir Guðjónsson)
Einbúinn / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Magnús Eiríksson)
Smuk som et stjerneskud / Brödrene Olsen (Jörgen Olsen)
Kartöflur / Sigurður Halldór Guðmundsson (Sigurður Halldór Guðmundsson)
UMSJÓN GUNNAR HANSSON
Krisbjörg Kjeld les söguna Rán eftir Álfrúnu Gunnlaugsdóttur. Sögukonan er íslensk menntakona, Rán að nafni. Hún hefur lifað og starfað fjarri heimahögunum öll sín fullorðinsár, mótast og þroskast á framandi slóðum. Nú er hún á leið frá heimili sínu og manni í Sviss til fósturjarðarinnar, með viðkomu í Barcelona þar sem hún átti viðburðaríkt líf við nám á æskuárum. Og þar komst hún i kynni við eldhugann og andófsmanninn Roberto sem reyndist henni mikill ölagavaldur. Þessi ferð reynist sársaukafullt stefnumót Ránar við fortíðina. Bókin var gefin úr árið 2008.
(Áður á dagskrá 2011)
Útvarpsfréttir.
Veðurstofa Íslands.
Fuglasöngur er flókið tungumál sem fuglar nota til að tjá ýmsar mikilvægar upplýsingar um sig sjálfa. Í þessari þáttaröð er fjallað um fuglasöng frá bæði líffræðilegum og menningarlegum hliðum. Hvað hafa fuglar að segja og hvað eigum við manneskjur sameiginlegt með fuglum þegar kemur að samskiptum?
Umsjón: Hlynur Steinsson.
Ritstjórn og samsetning: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir
Í þessum fyrsta þætti fræðumst við um líffræðilegu hliðar fuglasöngs. Við pælum í þróun fuglasöngs, raddböndum og þeim upplýsingum sem líffræðileg tónlist hefur að geyma. Eigum við manneskjur mögulega eitthvað sameiginlegt með fuglum þegar kemur að samskiptum?
Umsjón: Hlynur Steinsson.
Ritstjórn og samsetning: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.
Tónlist: Cosmo Sheldrake.
Útvarpsfréttir.
Hátíðahöldum um allt land er hvergi nærri lokið þó langt sé liðið á sumarið. Ýmsar hátíðir eru á dagskrá um helgina, þar á meðal Vatnsdæluhátíð í Húnabyggð. Við heyrðum í Elfu Þöll Grétarsdóttur skipuleggjanda og forvitnuðumst um hátíðina.
Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri í Hafnarfirði var gestur okkar í gærmorgun þar sem hún ræddi gjaldfrjáls námsgögn og skólamáltíðir meðal annars. Rósa sagði sveitarfélögunum hafa verið stillt upp við vegg varðandi gjaldfrjálsar skólamáltíðir og hún hefði kosið aðra aðkomu ríkisins að kjarasamningum. Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra kom til okkar í dag og brást við þessu.
Stærsta þungarokkshátíð heims fer fram í Wacken í Þýskalandi í byrjun ágúst ár hvert. Þangað streymdu 85 þúsund rokkarar til að hlusta á 250 tónlistaratriði með hátt í 200 hljómsveitum og listamönnum. Síðustu tuttugu árin hafa Íslendingar farið í skipulagða hópferð á staðinn sem skipuleggjendur kalla helga jörð. Brynjólfur Þór Guðmundsson fréttamaður brá sér í för með þeim þetta árið og reyndi að komast að því hvers vegna fólk fer aftur og aftur á sömu hátíðina.
Starfsumhverfi lækna á Íslandi hefur lengi verið mjög erfitt og úrbætur gerast hægt, segir Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélags Íslands. Mannekla sé komin á verulega slæman stað og hættan á alvarlegri kulnun lækna og brotthvarfi úr starfi mikil. Hún segir mikilvægt að stéttinni sé gert kleift að sinna hlutverki sínu gagnvart fólkinu í landinu og ryðja þurfi öllum hindrunum úr vegi til að svo megi vera. Steinunn kom og ræddi þetta við okkur.
Svo kom Björn Berg Gunnarsson til okkar í fjármálaspjallið. Hann talaði við okkur um fyrirbærið að kaupa núna og borga síðar – leið sem er töluvert auglýst þessa dagana en getur reynst varasöm.
Lagalisti:
Ragnheiður Gröndal - Flowers in the Morning
Paolo Nutini - New shoes
Jónas Sig & Lúðrasveit Þorlákshafnar - Fortíðarþrá
Iceguys - Gemmér Gemmér
Nýdönsk - Fullkomið farartæki
David Bowie & Pat Metheny - This Is Not America
Ben E. King - Stand By Me
Sting - Desert Rose
Kings of Leon - Sex On Fire
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps skoðar að kæra útgáfu virkjunarleyfis fyrir vindorkuver við Búrfell. Oddvitinn segir ábata nærsamfélagsins af virkjuninni engan.
Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í Bel-gorod héraði í Rússlandi vegna árása Úkraínumanna í þar. Innrásarherinn hefur lagt undir sig mikið land í nágrannahéraðinu Kursk.
Barna- og menntamálaráðherra segir það sérstaka nálgun hjá bæjarstjóranum í Hafnarfirði að tala um að sveitarfélögum hafi verið stillt upp við vegg með gjaldfrjálsum máltíðum í grunnskólum.
Starfsumhverfi lækna á Íslandi hefur lengi verið mjög erfitt og úrbætur gerast hægt, að sögn formanns Læknafélags Íslands. Grípa verði fast í handbremsuna áður en það er of seint.
Móðir 14 ára drengs sem skilinn var eftir á flugvellinum í Róm vegna þess að yfirbókað var í flug Wizz air til Keflavíkur segir fátt um svör frá flugfélaginu.
Alsírska hnefaleikakonan og ólympíumeistarinn Imane Khelif, sem varð fyrir miklu aðkasti á Ólympíuleikunum hefur höfðað mál vegna neteineltis, meðal annars gegn rithöfundinum J.K. Rowling og auðkýfingnum Elon Musk.
Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson, Lovísa Rut Kristjánsdóttir og Matthías Már Magnússon.
Lovísa Rut stjórnaði Popplandi dagsins. Póstkassinn opnaður upp á gátt: Helga Margrét Clarke sendi kveðju með nýju lagi sem og Stefán Berg sem var að gera lag með Inga Bauer og VÆB. Plata vikunnar á sínum stað, Away From this Dream með Axel Flóvent. Þess á milli allskonar tónlist og þessar helstu tónlistarfréttir.
Nýdönsk - Fullkomið farartæki.
DAVID BOWIE - Moonage Daydream.
Charli XCX - Apple.
PHOENIX - Alpha Zulu.
Supersport! - Gráta smá.
Japanese House, The - :).
Arctic Monkeys - Mardy Bum.
Spears, Britney - Overprotected.
Ebba Katrín Finnsdóttir, Cyber - OVERprotected ft. EBBA.
Metronomy - Right on time.
JAMES TAYLOR - Fire And Rain.
Axel Flóvent - When the Sun Goes Down.
Axel Flóvent - Have This Dance.
EDDIE VEDDER - Society.
Lón - Rainbow.
Mann, Matilda - Meet Cute.
Smith, Myles - Stargazing.
Bubbi Morthens - Tveir tveir fjórir.
DONOVAN - Sunshine Superman.
Cage the Elephant - Rainbow.
MARKÚS - É bisst assökunar.
Þorsteinn Einarsson, Steinunn Jónsdóttir - Á köldum kvöldum.
SIXPENCE NON THE RICHER - Kiss Me.
FLORENCE AND THE MACHINE - Spectrum.
Staples, Mavis - Worthy.
O´JAYS - For the love of money.
Beyoncé - COZY.
Jungle - Back On 74.
THE EMOTIONS - Best Of My Love.
VÆB - Bíómynd.
Luigi, HúbbaBúbba - HubbaBubba ft.Luigi.
Diljá, Fosteii - I'll Wait.
Badu, Erykah - Appletree.
TWENTY ONE PILOTS - Stressed Out.
Eminem - Houdini.
Green Day - Wake Me Up When September Ends.
ICEGUYS - Gemmér Gemmér.
Páll Óskar Hjálmtýsson - Gleðivíma.
Lenker, Adrianne - Sadness as a Gift.
Margrét Rán Magnúsdóttir - Gleðivíma.
Elín Ey - Ljósið.
Helga Margrét Clarke - Chasing Rainbows.
Lamontagne, Ray - Step Into Your Power.
AXEL FLÓVENT - Honesty.
MOLOKO - The Time Is Now.
MAMMAÐÍN - Frekjukast.
DUA LIPA - Dance the Night.
GDRN & UNNSTEINN MANÚEL - Utan þjónustusvæðis.
Fulltrúar minnihluta bæjarstjórnar Akureyrar segja að allt útlit sé fyrir að meirihluti Sjálfstæðisflokks, Miðflokks og L lista í bæjarstjórn ætli sér að snuða launþega um kjarabót sem flestir íbúar landsins hafa nú þegar fengið. Fólk hafi samþykkt kjarasamninga með mjög hóflegum launahækkunum í þeirri trú að þeirra sveitarfélag myndi standa við gefin loforð og lækka gjaldskrár sveitarfélaga er varða barnafjölskyldur og fólk í viðkvæmri stöðu. Við hringdum norður og heyrðu í Hildi Jönu Gísladóttur oddvita Samfylkingarinnar.
Í ár eru 25 ár síðan Sagan af bláa hnettinum kom út en um er að ræða barnabók eftir íslenska rithöfundinn Andra Snæ Magnason, myndskreytt af Áslaugu Jónsdóttur. Bókin hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin sama ár og hún kom út eða 1999 fyrst allra barnabóka og insælt leikrit, Blái hnötturinn, var gert eftir bókinni og það sýnt í Þjóðleikhúsinu árið 2001 auk þess sem það hefur verið sýnt víðsvegar um heiminn og bókin hefur verið þýdd á fjölmörg tungumál. Höfundurinn Andri Snær kom til okkar í þáttinn
Sprotafyrirtækið Opus Futura hefur smíðað ráðningarlausn sem breytir því hvernig fyrirtæki og einstaklingar tengjast. Markmið lausnarinnar er að veita einstaklingum tækifæri til aðparast við öll laus störf, óháð því hvort þeir eru í atvinnuleit eða ekki, án þess að þurfa að ganga í gegnum tímafrekt umsóknarferli.
Helga Jóhanna Oddsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Opus Futura kom í Síðdegisútvarpið
Í sumar líkt og sl. fimm ár hefur staðið yfir fornleifauppgröftur í Firði í Seyðisfirði, Þarna hafa fundist fleiri þúsund gripir litlir sem stórir sem talið er að séu frá árunum 940-1100. En hvaða gripir eru þetta og um hvaða landnámsbæ er um að ræða? Ragnheiður Traustadóttir fornleifafræðingur sagði okkur allt um það.
En við byrjuðum á Jóni Inga Hákonarsyni oddvita Viðreisnar í bæjarstjórn Hafnarfjarðar en hann skrifaði áhugaverða grein sem birtist á Vísi sem hefur yfirskriftina: Það er hægt að lækka byggingarkostnað á Íslandi. Þessi grein byrjar á sögu af ungum manni sem reynir að komast inn á fasteignamarkaðinn á Íslandi.
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Sultan er 30 mínútna lagalisti settur saman fyrir þig í hverri viku. Hlustaðu á Sultuna í útvarpinu eða í spilaranum þegar þér hentar. Á mánudögum er sulta dagsins soul, jazz og annað sem grúvar.
Fréttastofa RÚV.
Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmaður: Þorsteinn Hreggviðsson.
Útvarpsfréttir.
Tónlistinn er vinsældalisti Íslands. Listinn er samantekt á mest spiluðu lögunum á útvarpsstöðvunum Bylgjunni, FM957, X-inu 977, Rás 2 og K100, sem og á streymisveitum. Listinn er unninn af Félagi hljómplötuframleiðenda og er á dagskrá Rásar 2 alla sunnudaga.
Umsjón: Helga Margrét Höskuldsdóttir.
Vinsælustu lögin á Íslandi vikuna 3. - 10. ágúst.