1. Skoffín og sæskrímsli
Ormhildur neitar að veiða múshveli í súpuna hans Alberts og Hallgrímur ákveður að reka þau á dyr. Til að komast hjá því leggur Albert af stað í hættulega skoffínveiðiferð. Ormhildur…
Ormhildur, Albert og Guðrún leita að Týndu bókinni á Eyju safnarans. Þar rekast þau á Grétu, sem vann einu sinni með Alberti, og vill ná sér niðri á honum. Áform hennar koma í ljós þegar Álfur handsamar Albert. Guðrún og Ormhildur flýja með Týndu bókina í farteskinu.

Jöklarnir hafa hopað og allar þjóðsagnaverurnar úr gömlu bókunum eru komnar fram í dagsljósið. Ormhildur og Albert gamli leggja af stað í leiðangur með Guðrúnu og Brynhildi. Þau ætla að fremja galdraseið til að kveða vættirnar aftur inn í jöklana. Allt fer á hliðina þegar Albert er tekinn höndum og hópurinn hrapar í fjallinu. Á ferðalaginu uppgötvar Ormhildur að hún býr yfir leyndum hæfileika og kemst að því að töfraverurnar eru ekki allar þar sem þær eru séðar.