Mannlegi þátturinn

Ertu klár í kynlífið? Vinkill dagsins og Aníta Rut lesandi vikunnar

Handbókin Ertu klár í kynlífið? var nýlega gefin út á vegum Samtaka um kynheilbrigði. Handbókin er ætluð ungum karlmönnum á aldrinum 16-24 ára. Tilurð þessarar handbókar rekja til frásagna ungra karlmanna hér á landi en hún svarar ákalli þeirra eftir meiri fræðslu um kynheilbrigði. Bókin fjallar um sex viðfangsefni, sjálfsöryggi, samskipti, samþykki, sambönd, smokkanotkun og það stunda kynlíf. Tvær af höfundum bókarinnar, Lóa Guðrún Gísladóttir, aðjúkt og doktorsnemi, og Sóley S. Bender, formaður samtaka um kynheilbrigði og prófessor emerita, komu í þáttinn og sögðu okkur meira frá henni.

Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag. Vinkill dagsins fór aðeins á dýpið í dag, pistlahöfundur fékk það verkefni fyrir nokkru rifja upp minningar úr bernsku sem var áhugaverð lífsreynsla og kannski mannbætandi. Tilgangurinn var afla efnis fyrir listamanninn Ólaf Svein Gíslason, sem um stundir sýnir verkið „Undirliggjandi minni“ í Félagslundi, Flóahreppi. Eftir svona mikla naflaskoðun var svo notalegt nokkrar vísur og skáldkonan Erla, Guðfinna Þorsteinsdóttir, fylgdi okkur inn í daginn.

Svo var það lesandi vikunnar. Í þetta sinn var það Aníta Rut Kristjánsdóttir, læknir í sérnámsgrunni. Við fengum hana til segja okkur frá því hvað hún hefur verið lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum lífið. Aníta Rut talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:

Lady Tan's Circle of Women e. Lisa See

The Wolf Den e. Elodie Harper

Snerting e. Ólaf Jóhann Ólafsson

Out e. Natsuo Kirino

Percy Jackson sería e. Rick Riordan

og Howl's Moving Castle e. Dianna Wynne Jones.

Tónlist í þættinum:

Glaðasti hundur í heimi / Friðrik Dór Jónsson, Dr. Gunni og vinir hans (Gunnar Lárus Hjálmarsson)

vera í sambandi / Stuðmenn ( Tómas M. Tómasson, Valgeir Guðjónsson, Jakob Frímann Magnússon)

Manstu ekki eftir mér / Ragnhildur Gísladóttir og Trabant ehf. (Ragnhildur Gísladóttir, texti Þórður Árnason)

UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

7. okt. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson

Þættir

,