Hátíðarlandinn
Í hátíðarþætti Landans fylgjum við sextíu lopapeysum til nýrra eigenda á Indlandi, hlustum á Eyjalög, förum með handverksfólki á jólamarkað, fögnum aðventunni að hætti skáldsins, höldum…
Landinn skoðar hvort hægt sé að rækta þörunga til manneldis á Íslandi og hittir vaskan hóp fólks sem trúir því að framtíðin sé í fjörunni. Við búum líka til ólar úr hreindýraleðri, rýjum kindur, flettum nýrri bók um hvítabirni og heimsækjum leikarann Sigga Sig sem er forfallinn Chaplin aðdáandi og klæðir sig nú í föt átrúnaðargoðsins í Þjóðleikhúsinu.

Þáttur um lífið í landinu. Landinn ferðast um og hittir fólk sem er að gera áhugaverða og skemmtilega hluti. Umsjónarmenn eru Gísli Einarsson, Þórgunnur Oddsdóttir, Edda Sif Pálsdóttir, Gunnar Birgisson og Halla Ólafsdóttir. Dagskrárgerð: Karl Sigtryggsson, Magnús Atli Magnússon, Gunnlaugur Starri Gylfason og Jóhannes Jónsson.