Hátíðarlandinn
Í hátíðarþætti Landans fylgjum við sextíu lopapeysum til nýrra eigenda á Indlandi, hlustum á Eyjalög, förum með handverksfólki á jólamarkað, fögnum aðventunni að hætti skáldsins, höldum…
Landinn skoðar hvað það þýðir að vera vegan en sífellt fleiri tileinka sér þann lífsstíl. Við förum á síldarvertíð á Þórshöfn, tökum upp kartöflur með börnunum á leikskólanum Hólmasól, skoðum vistgerðir Íslands og skellum okkur í sextugsafmæli leikfélags Selfoss.

Þáttur um lífið í landinu. Landinn ferðast um og hittir fólk sem er að gera áhugaverða og skemmtilega hluti. Umsjónarmenn eru Gísli Einarsson, Þórgunnur Oddsdóttir, Edda Sif Pálsdóttir, Gunnar Birgisson og Halla Ólafsdóttir. Dagskrárgerð: Karl Sigtryggsson, Magnús Atli Magnússon, Gunnlaugur Starri Gylfason og Jóhannes Jónsson.