Flakk

25112021 - Flakk - Flakk um skipulagsdaginn og skipulag til framtíðar

Árleg ráðstefna um stöðu og þróun skipulagsmála, sem Skipulagsstofnun stendur fyrir í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga, fór fram 12. nóvember síðastliðinn í Salnum í Kópavogi. Ráðstefnan var vel sótt, af bæði gestum í sal og í streymi og var góður rómur gerður dagskrá og einstökum framlögum. Yfirskrift ráðstefnunnar í ár var Skipulag fyrir nýja tíma - þar sem loftslagsmál, sjálfbær og aðlaðandi byggð og aðlögun skipulags gagnvart loftslagsbreytingum og náttúruvá voru í forgrunni. Við ætlum plokka út nokkra af þeim sem töluðu á ráðstefnunni í tveimur þáttum - það er mörgu huga í samtímanum varðandi skipulag. Rætt er við Þráinn Hauksson landslagsarkitekt, Hörpu Stefánsdóttur arkitekt og doktor í skipulagsfræðum og starfar við umhverfis- og lífvísindaháskólann í Osló, en byrjum hjá Ásdísi Hlökk Theódórsdóttur forstjóra Skipulagsstofnunar

Frumflutt

25. nóv. 2021

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Flakk

Flakk

Lísa Pálsdóttir flakkar um borg og bý.

Þættir

,