Svipmynd

Svipmynd af klarínettuleikara / Arngunnur Árnadóttir

Arngunnur Árnadóttir er tónlistarkona og rithöfundur. Hún byrjaði snemma læra á hljóðfæri. Eftir hafa lokið forskóla Tónmenntaskólans í Reykjavík langaði hana hefja nám á saxófón en vegna fingralengdar var henni frekar ráðlagt leggja fyrir sig klarínett. Á unglingsárum sínum kom henni til hugar hætta hljóðfæranámi en á þeim tíma spilaði hún í fyrsta skipti með sinfóníuhljómsveit og komst hún í tæri við töfra flutningsins. Arngunnur stundaði síðan framhaldsnám í klarínettuleik við Listaháskóla Íslands og við Hochschule für Musik Hanns Eisler í Berlín og hefur frá haustinu 2012 gegnt stöðu fyrsta klarínettuleikara Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

Samhliða tónlistinni hefur Arngunnur sent frá sér tvær ljóðabækur og eina skáldsögu. Fyrstu ljóðabók sína, Unglingar, byrjaði hún skrifa í vetrarfríi í Berlín og gaf út í seríu Meðgönguljóða árið 2013. Skáldsagan heiman fylgdi þar á eftir og lýsir í meitluðum og stílhreinum prósa tilveru Unnar í Reykjavík og segir frá ferðalagi hennar út á land. Síðast sendi Arngunnur frá sér ljóðabókina Ský til gleyma, sem fjallar meðal annars um tregablandna eftirsjá eftir tíma og fólki sem rennur ljóðmælanda úr greipum.

Frumflutt

29. maí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Svipmynd

Svipmynd

Listamenn koma með tónlist í farteskinu og rifja upp sögur úr lífi sínu, segja frá verkum, áhrifavöldum og andagift. Dregin er upp svipmynd vikulega í menningarþættinum Víðsjá á Rás1.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,