
Sumarmál
Ferðalög og útivist. Fróðleikur og skemmtun. Fólk og náttúra. Fugl dagsins, fjöll og firnindi. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar. [email protected]
Við fáum ferðasögu eins og alltaf á föstudögum. Fyrr í þessari viku voru liðin átta ár frá frækilegu sundafreki Sigrúnar Geirsdóttur þegar hún synti ein yfir Ermasundið, fyrst íslenskra kvenna. Sundið tók mikið á og var hreint þrekvirki, enda var hún tæpan sólarhring í sjónum. Sigrún segir okkur ferðasöguna.
Lag vikunnar að þessu sinni er lagið Er þetta ást? Við heyrum meira um tilurð þess þegar Páll Óskar Hjálmtýsson mætir í eigin persónu og segir frá.
Tónlist:
Er þetta ást? / Unnsteinn Manúel (Páll Óskar Hjálmtýsson og Örlygur Smári)
Ágústnótt / Sextett Ólafs Gauks (Oddgeir Kristjánsson og Árni Guðmundsson úr Eyjum)
Umsjón: Guðmundur Pálsson og Guðrún Gunnarsdóttir

Ferðalög og útivist. Fróðleikur og skemmtun. Fólk og náttúra. Fugl dagsins, fjöll og firnindi. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar. [email protected]