
Sumarmál
Ferðalög og útivist. Fróðleikur og skemmtun. Fólk og náttúra. Fugl dagsins, fjöll og firnindi. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar. [email protected]
Umsjón Guðrún Gunnarsdóttir og Guðmundur Pálsson
Við skunduðum á Þingvöll í Sumarmálum í dag. Þar hefur verið mikil uppbygging undanfarin ár og margt í pípunum, enda ört stækkandi straumur ferðamanna sem gera sér ferð þangað til að skoða þennan fallega stað og kynna sér sögu hans og umhverfi. Einar Sæmundsen þjóðgarðsvörður tók á móti sumarmálum á Hakinu.
Safn vikunnar í Sumarmálum er Þjóðminjasafn Íslands og Harpa Þórsdóttir þjóðminjavörður kom til okkar og sagði okkur frá helstu verkefnum í sumar en nú í ágúst verður áhugavert samstarf við Hinsegin daga og Menningarnótt.
Í Reykjavík verður safnast saman við suðvesturenda Tjarnarinnar í kvöld og kertum verður fleytt í minningu í minningu fórnarlamba kjarnorkuárásanna á Hírósíma og Nagasakí. Fleytt verður á fjórum stöðum á landinu en það eru Íslenskir friðarsinnar sem standa fyrir viðburðinum. Við töluðum við Ingibjörgu Haraldsdóttur frá Íslenskum friðarsinnum.
Fugl dagsins var auðvitað á sínum stað eftir fyrsta lag.
Erla Þorsteinsdóttir - Ítalskur calypso.
BEATLES - I Will.
Roof Tops, Ari Jónsson - Söknuður.
Les Paul - Brazil.

Ferðalög og útivist. Fróðleikur og skemmtun. Fólk og náttúra. Fugl dagsins, fjöll og firnindi. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar. [email protected]