
Sumarmál
Ferðalög og útivist. Fróðleikur og skemmtun. Fólk og náttúra. Fugl dagsins, fjöll og firnindi. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar. [email protected]
Á Þingeyri við Dýrafjörð er starfrækt hljóðfærasafn. Það er hljóðfærasmiðurinn Jón Sigurðsson sem á og rekur safnið og hann er að auki sérfræðingur í gerð langspila. Guðmundur Pálsson fór til Þingeyrar og fékk að vita allt um safnið.
Á Blöndósi er starfrækt Textíl Lab í tengslum við Textílmiðstöð Íslands þar sem meðal annars er verið að gera áhugaverðar tilraunir með að fá bakteríur til að lita ullina okkar. Við kíktum í heimsókn og töluðum við Margréti Katrínu Guttormsdóttur verkefnastjóra.
Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag. Í korti dagsins segir frá óvenjulegri veðurblíðu í Eyjum, velheppnaðri Goslokahátíð og undirbúningi fyrir næsta partí sem er sjálf Þjóðhátíðin. Magnús rifjar upp að hann var í Eyjum kvöldið fyrir gos fyrir fimmtíu árum og ber þess enn merki. Hann segir frá andvöku sinni gosnóttina til sjós og í framhaldinu kemur hann með gott ráð fyrir þá sem þurfa að þola hrotur og kæfisvefn hjá maka eða svefnfélaga. Þrátt fyrir framfarir í vísindum og tækni þá hefur ekki tekist að koma í veg fyrir óþefinn sem leggur yfir Vestmannaeyjabæ þegar bræðsla á kolmuna hefst. Frá þessu segir í lok póstkortsins.
Fugl dagsins var svo auðvitað á sínum stað.
Tónlist í þættinum:
Úti í garði / Lúdó og Stefán (Leadbelly og Hinrik Bjarnason)
Í bláum skugga / Stuðmenn (Sigurður Bjóla Garðarsson)
Flottur jakki / Raggi Bjarna (Thomas og Kristján Hreinsson)
Dedicated Follower of Fashion / The Kinks (Ray Davies)
Sólarsamba / GÓSS (Magnús Kjartansson og Halldór Gunnarsson)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG BRYNHILDUR BJÖRNSDÓTTIR

Ferðalög og útivist. Fróðleikur og skemmtun. Fólk og náttúra. Fugl dagsins, fjöll og firnindi. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar. [email protected]