Freyja Hilmarsdóttir, íþróttafræðingur, hlaut á dögunum styrk úr Styrktarsjóði LEB, Landssambands eldri borgara. Freyja er 24 ára og er með BSc gráðu í íþróttafræði frá HR. Hún valdi grunnnám í íþróttafræði með það í huga að vilja hjálpa þeim sem eiga erfitt með að hreyfa sig sökum sjúkdóma eða verkja. Eftir að hafa þjálfað fólk á eftirlaunaaldri fór hún að átta sig á því hversu mikil áhrif til góðs hreyfing getur haft á líf fólks á efri árum og nú er hún á leiðinni í meistaranám í styrktar- og þolþjálfun þar sem hún sérhæfir sig í þjálfun fyrir 60 ára og eldri. Við fengum Freyju til að segja okkur frá sínu námi og störfum og að persónuleg reynsla hennar hafi meðal annars leitt hana inn á þessa braut, en hún var greindist sjálf aðeins 10 ára með Crohn's sjúkdóminn.
Við heimsóttum Andahvilft við Arnarfjörð en það hús var upphaflega reist í Hvestudal skömmu fyrir aldamótin 1900. Fyrir nokkrum árum tóku hjónin Dagný Heiðdal og Tómas Guðbjartsson sig til, létu flytja húsið að Andahvilft sem er þar skammt frá og gerðu húsið upp. Við tókum hús á Dagnýju í Arnarfirðinum og ræddum við hana um framkvæmdirnar, húsið og umhverfið, sem er einstakt.
Svo var fugl dagsins auðvitað á sínum stað eftir fyrsta lag.
Tónlist í þættinum
...Og þess vegna erum við hér í kvöld / Fjallabræður ásamt Jónasi Sig og Magnúsi Þór (Magnús Þór Sigmundsson)
Bensínið er búið / Langi Seli og Skuggarnir (Axel Hallkell Jóhannesson, Erik Robert Qvick, Jón Þorleifur Steinþórsson)
Akstur á undarlegum vegi / Sléttuúlfarnir (Gunnar Þórðarson og Jónas Friðrik Guðnason)
Þórsmerkurljóð / Kristján Kristjánsson (höfundur ókunnur, texti eftir Sigurð Þórarinsson)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR