
Sumarmál
Ferðalög og útivist. Fróðleikur og skemmtun. Fólk og náttúra. Fugl dagsins, fjöll og firnindi. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar. [email protected]
Við fræddumst um LEK, eða Landssamtök eldri kylfinga í þættinum í dag. Í fyrra voru um 23.300 kylfingar eru skráðir í 62 golfklúbba víðs vegar um landið, sem var 5% aukning á milli ára. Þar af eru tæp þrettán þúsund 50 ára og eldri. Landssamtökin halda úti starfi til að efla samstarf og félagsskap eldri kylfinga, til dæmis í gegnum mótaröð og með þáttöku í alþjóðastarfi kylfinga. Gauti Grétarsson, formaður LEK, kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá starfi samtakanna í þættinum.
Ása Baldursdóttir kom til okkar í dag og sagði okkur frá áhugaverðu efni til að hlusta eða horfa á, sem sagt hlaðvarpsþáttum og sjónvarpsþáttum. Í dag fjallaði Ása um hlaðborð vonlausra stefnumóta í hlaðvarpinu My Wors Date, svikamylludrottningu sem engri er lík í hlaðvarpinu Filthy Ritual og svo sjónvarpsþætti þar sem gömlum gistiheimilum er umbreytt á stórkostlegan hátt í Netflix þáttaröðinni Motel Makeover.
Fugl dagsins var auðvitað á sínum stað.
Tónlist í þætti dagsins:
Parísarhjól / GDRN (Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir og Þormóður Eiríksson)
Ástin vex á trjánum / Valgeir Guðjónsson (Valgeir Guðjónsson)
Sunny / Bobby Hebb (Bobby Hebb)
Austurstræti / Laddi (Þórhallur Sigurðsson)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐMUNDUR PÁLSSON

Ferðalög og útivist. Fróðleikur og skemmtun. Fólk og náttúra. Fugl dagsins, fjöll og firnindi. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar. [email protected]