PartyZone - Undir diskókúlunni

Party Zone Undir diskókúlunni 27. júní

Diskókúlan snýst í Efstaleitinu á laugardagskvöldum í sumar.

Dagskrárliðir eins og Diskótvennan, Frímínútur, Dansárið er, Party Zone múmíur og íslenska lagið verða öll á sínum stað og við hristum í góðan kokteil í seinni hlutar þáttar.

Í þessum þætti er dansárið árið 1996 þar sem meðal annars PartyZone '96 mixdiskurinn kom út og verða lög frá því frábæra tónlistarári í flestum dagskrárliðum þáttarins.

Birt

27. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

PartyZone - Undir diskókúlunni

Það eiga allir einhverjar góðar og jafnvel trylltar minningar af dansgólfinu þar sem diskókúlan snýst. Við spilum dansmelli áratuganna og kyndum upp í minningum hlustenda. Við rifjum upp skemmtistaði, ákveðin ár eða gullaldartímabil þar sem dansgólfin voru troðfull af gleði og látum.

Þátturinn geymir dagskrárliði eins og Diskótvennuna, Dansárið er, Skemmtistað fortíðar, Veislustjórann og íslenska lagið. lokum er kokteill kvöldsins hristur fyrir hlustendur, nokkurra laga syrpa með lögum úr ýmsum áttum.

Þættir

,