PartyZone - Undir diskókúlunni

Party Zone - Undir diskókúlunni : 19. júlí

Við hefjum þáttinn á geggjaðri diskóþrennu og förum svo útí frímínútur með allskonar dansbombum fortíðar. Dansárið 2000 verður rifjað upp ásamt því við kíkjum á skemmtistaðinn Pravda í kringum árið 2006. Topplög PZ listans fyrir 30, 25 og 10 árum verða spiluð. Vegna fjölda árskoranna munum við spila aðra upptöku frá rosalegu "PartyZone´95" kvöldi á Jacobsen sumarið 2009 sem við fundum í safni þáttarins fyrir stuttu.

Frumflutt

19. júlí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
PartyZone - Undir diskókúlunni

PartyZone - Undir diskókúlunni

Það eiga allir einhverjar góðar og jafnvel trylltar minningar af dansgólfinu þar sem diskókúlan snýst. Við spilum dansmelli áratuganna og kyndum upp í minningum hlustenda. Við rifjum upp skemmtistaði, ákveðin ár eða gullaldartímabil þar sem dansgólfin voru troðfull af gleði og látum.

Þátturinn geymir dagskrárliði eins og Diskóþrennuna, Dansárið er, Skemmtistað fortíðar og íslenska lagið. Gestur þáttarins fær nafnbótina Veislustjórinn og rifjar upp trylling á dansgólfinu og velur nokkur lög. lokum er kokteill kvöldsins hristur fyrir hlustendur, nokkurra laga syrpa með lögum úr ýmsum áttum.

Umsjón: Kristján Helgi Stefánsson og Helgi Már Bjarnason

Þættir

,