PartyZone - Undir diskókúlunni

Dansbombur fortíðar

Afleggjaraþáttur PartyZone, sem heitir Undir Diskókúlunni er mættur aftur á dagskrá Rásar 2 núna í júní og júlí. Dansbombur fortíðar, öll lögin sem hlustendur muna eftir í nostalgíukasti og upplifðu í tryllingi undir diskókúlu á skemmtistað einhverntíma. Dagskrárliðir eins og "Dansárið er.... , Topplög PZ, Litið inná skemmtistað fortíðar og Hristur Kokteill kvöldsins, eru á sínum stað

Frumflutt

7. júní 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
PartyZone - Undir diskókúlunni

PartyZone - Undir diskókúlunni

Það eiga allir einhverjar góðar og jafnvel trylltar minningar af dansgólfinu þar sem diskókúlan snýst. Við spilum dansmelli áratuganna og kyndum upp í minningum hlustenda. Við rifjum upp skemmtistaði, ákveðin ár eða gullaldartímabil þar sem dansgólfin voru troðfull af gleði og látum.

Þátturinn geymir dagskrárliði eins og Diskóþrennuna, Dansárið er, Skemmtistað fortíðar og íslenska lagið. Gestur þáttarins fær nafnbótina Veislustjórinn og rifjar upp trylling á dansgólfinu og velur nokkur lög. lokum er kokteill kvöldsins hristur fyrir hlustendur, nokkurra laga syrpa með lögum úr ýmsum áttum.

Umsjón: Kristján Helgi Stefánsson og Helgi Már Bjarnason

Þættir

,