Party Zone listinn fyrir febrúar 2026
PartyZone listinn - Topp 30 fyrir janúar og febrúar 2026 er mál málanna í þættinum að þessu sinni.
Við gefum plötusnúð sviðið í þessum dagskrárlið Party Zone sem við köllum Nauðsynlega mixið og í þetta skiptið er það enginn annar en Gunni Ewok.
Ewok, oft kenndur við Plútó, tekur hlustendur í ferðalag um helstu stefnur danstónlistar og kemur víða við í þessu geggjaða mixi.

PartyZone - Dansþáttur þjóðarinnar frá 1990 - Við grúskum í og spilum alla heitustu danstónlistina í dag í bland við dansbombur fortíðar.
Umsjón: Helgi Már Bjarnason og Kristján Helgi Stefánsson.