Party Zone listinn fyrir febrúar 2026
PartyZone listinn - Topp 30 fyrir janúar og febrúar 2026 er mál málanna í þættinum að þessu sinni.
Fyrsti PartyZone þáttur ársins 2026 verður stuð.
Við handveljum nokkur geggjuð lög af árslistanum 1995 og ljúkum 95 yfirferðinni sem hefur verið í gangi í þættinum síðasta árið.
Eitt glænýtt íslenskt af nýrri breiðskífu Exos fær svo að flakka áður en DJ Álfbeat fer í DJ búrið og tekur sett kvöldsins. Við bjóðum Ásu Lind, DJ Álfbeat, velkomna í sína fyrstu og löngu tímabæra heimsókn í þáttinn.
Við minnum svo á árslista þáttinn okkar næstu helgi!

PartyZone - Dansþáttur þjóðarinnar frá 1990 - Við grúskum í og spilum alla heitustu danstónlistina í dag í bland við dansbombur fortíðar.
Umsjón: Helgi Már Bjarnason og Kristján Helgi Stefánsson.