Party Zone listinn fyrir febrúar 2026
PartyZone listinn - Topp 30 fyrir janúar og febrúar 2026 er mál málanna í þættinum að þessu sinni.
Við gefum plötusnúð sviðið í þessum dagskrárlið Party Zone sem við köllum Nauðsynlega mixið og í þetta skiptið er það enginn annar en DJ Grétar.
DJ Grétar er óþarft að kynna fyrir Party Zone hlustendum enda búinn að fylgja þættinum nánast frá upphafi. Í þessu mixi býður hann hlustendum upp á alls konar lög sem hann hefur verið að fíla í sumar í mixi sem hann kallar End of summer og var tekið upp í kvöldsólinni.

PartyZone - Dansþáttur þjóðarinnar frá 1990 - Við grúskum í og spilum alla heitustu danstónlistina í dag í bland við dansbombur fortíðar.
Umsjón: Helgi Már Bjarnason og Kristján Helgi Stefánsson.