PartyZone: Dansþáttur þjóðarinnar

Árslisti Party Zone fyrir 2024 - fyrri hluti

Dansannáll Party Zone, fyrir árið 2024, verður í fluttur í allri sinni dýrð í þáttum vikunnar.

Í þessum þætti finnum við fyrri hluta árslista Party Zone fyrir árið 2024, þar sem spiluð eru lögin sem eru í sætum 50. til 26 ásamt nokkrum lögum sem voru við það komast inn á top 50.

Plötusnúðarnir hafa valið árslista ásamt þáttarstjórnendum og við þann pott bætum við öllum PZ listum ársins sem leið. Útkoman er Árslisti PartyZone 2024 - Topp 50.

Seinni hluti árslistans, lögin í sætum 25. til 1. eru svo fluttur á Rás 2 á föstudagskvöld og kemur síðan einnig í spilara RÚV.

Frumflutt

24. jan. 2025

Aðgengilegt til

24. jan. 2026
PartyZone:  Dansþáttur þjóðarinnar

PartyZone: Dansþáttur þjóðarinnar

PartyZone - Dansþáttur þjóðarinnar frá 1990 - Við grúskum í og spilum alla heitustu danstónlistina í dag í bland við dansbombur fortíðar í dagskrárliðnum múmía kvölsins.

Sem fyrr eru plötusnúðar þungamiðja þáttarins og munu helstu plötusnúðarnir koma í heimsókn og taka DJ sett. Mánaðarlega kynnum við Topp 30 PartyZone listann valinn af plötusnúðunum. Við segjum fréttir af íslensku danssenunni og gefum íslenskri danstónlist sérstakan sess í þessari endurkomu PZ í línulega dagskrá á Rás 2.

Umsjón: Helgi Már Bjarnason og Kristján Helgi Stefánsson.

Þættir

,