• 00:08:04Valdimar Þór Svavarss. - að setja og virða mörk
  • 00:31:06Sigurbjörn Arnar - Elvis fæddist fyrir 90 árum

Mannlegi þátturinn

Að setja og virða mörk og Sigurbjörn um Elvis Presley

Okkar daglega líf felur oftast í sér vera í kringum annað fólk, hvort sem það er á vinnustað, í námi, á meðal fjölskyldu og vina eða einfaldlega ókunnugra í ýmsum aðstæðum. Í öllum tilvikum þar sem við erum umgangast annað fólk, hvort sem við eigum í beinum samskiptum við það eða ekki, þá reynir á mörkin okkar. Sumir eru með skýr mörk á meðan aðrir eru markalausir. Sumir virða mörk annarra á meðan aðrir gera það ekki. Þetta er áhugaverð umræða því öll viljum við mörkin okkar séu virt en setjum við öðrum mörk og hvað þýðir það? Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafi hefur mikla reynslu af því hjálpa öðrum á sviði meðvirkni og setja mörk, hann kom í þáttinn í dag.

Elvis Presley fæddist á þessum degi árið 1935, hann hefði því orðið 90 ára í dag ef hann hefði lifað. Sigurbjörn Arnar Jónsson er mikill áhugamaður um Elvis og ævi hans. Sigurbjörn kom fram á 10. áratug síðustu aldar í gervi Elvis, meðal annars þrisvar í sjónvarpinu. Við fengum Sigurbjörn í þáttinn í dag til segja okkur frá Elvis Presley, ferlinum og lífi hans og af hverju hann varð svona mikill aðdáandi.

Tónlist í þættinum:

Ég vil mér kærustu / Hjálmar (lagahöfundur ókunnur, texti Indriði Einarsson)

Heimförin / Ásgeir Trausti og Sinfóníuhljómsveit Íslands (Ásgeir Trausti Einarsson, texti Einar Georg Einarsson)

Suspicuous Minds / Elvis Presley (Mark James)

UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

8. jan. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

(Aftur í kvöld)

Þættir

,