Þorvaldur Bjarni
Þorvaldur Bjarni hefur samið heilan helling af skemmtilegum lögum sem við heyrum gjarnan á Leynifélagsfundum. Þetta eru lög eins og Pöddulagið, Stelpurokk og lögin úr Ávaxtakörfunni…
Köngulær, lirfur og skordýr eru á dagskrá fundarins í kvöld. Leynifélaginn Júlíana spjallar við skordýrafræðing og kemst að því hvaða skordýr eru á Íslandi, hvort þau séu hættuleg og hvernig maður verður skordýrafræðingur. Að lokum mun sögumaðurinn Felix lesa söguna Kalli og sælgætisgerðin eftir Roald Dahl.

Brynhildur Björnsdóttir og Kristín Eva Þórhallsdóttir halda leynifélagsfund fyrir alla krakka.