Þorvaldur Bjarni
Þorvaldur Bjarni hefur samið heilan helling af skemmtilegum lögum sem við heyrum gjarnan á Leynifélagsfundum. Þetta eru lög eins og Pöddulagið, Stelpurokk og lögin úr Ávaxtakörfunni…
Börn frá Barnaheill segja okkur frá vefnum Heyrumst.is sem er vettvangur fyrir börn til að tjá sig. Á vefnum geta börn sem eru 18 ára og yngri tjáð sig um áhyggjur sínar, vandamál, skólann, hversdagslífið og fleira.
Framhaldssagan er að sjálfsögðu á sínum stað, Kalli og sælgætisgerðin eftir Roald Dahl sem Felix Bergsson les.

Brynhildur Björnsdóttir og Kristín Eva Þórhallsdóttir halda leynifélagsfund fyrir alla krakka.