Þorvaldur Bjarni
Þorvaldur Bjarni hefur samið heilan helling af skemmtilegum lögum sem við heyrum gjarnan á Leynifélagsfundum. Þetta eru lög eins og Pöddulagið, Stelpurokk og lögin úr Ávaxtakörfunni…
Þorvaldur Bjarni hefur samið heilan helling af skemmtilegum lögum sem við heyrum gjarnan á Leynifélagsfundum. Þetta eru lög eins og Pöddulagið, Stelpurokk og lögin úr Ávaxtakörfunni og Hafinu bláa. Við tileinkum þennan Leynifélagsfund Þorvaldi Bjarna og leikum bestu lögin hans.

Brynhildur Björnsdóttir og Kristín Eva Þórhallsdóttir halda leynifélagsfund fyrir alla krakka.