Þorvaldur Bjarni
Þorvaldur Bjarni hefur samið heilan helling af skemmtilegum lögum sem við heyrum gjarnan á Leynifélagsfundum. Þetta eru lög eins og Pöddulagið, Stelpurokk og lögin úr Ávaxtakörfunni…
Í miðbæ Reykjavíkur hittast Hallgerður og Sólveig 11 ára tvisvar í viku og spila saman á gítar og hlæja mikið. Þær hafa lært á gítar í eitt ár og í kvöld spila þær fyrir okkur á gítarinn og spjalla við okkur um æfingar, gítarstrengi og fleira. Að lokum les Felix Bergson fyrir okkur úr sögunni Kalli og sælgætisgerðin eftir Roald Dahl.

Brynhildur Björnsdóttir og Kristín Eva Þórhallsdóttir halda leynifélagsfund fyrir alla krakka.